Veittu ferða­mönnum í vanda að­stoð við Héðinsfjarðargöng

Þrátt fyrir hina djúpu lægð sem gekk yfir landið í gær og í nótt þá fengu björgunarsveitir landsins ekki ýkja mörg útköll. Þrátt fyrir að vindurinn gangi hratt niður fram eftir degi og gul veðurviðvörun á bak á burt þá er von á öðrum veðurhvelli seint í kvöld. Veðurstofan varar við óveðri á Norðausturlandi, Austurlandi og Austfjörðum en gul viðvörun tekur gildi þar á miðnætti.