Boða 110.000 króna heimgreiðslur í Árborg

Bæjaryfirvöld í Sveitarfélaginu Árborg hafa ákveðið að taka upp heimgreiðslur fyrir foreldra barna sem komast ekki á leikskóla í sveitarfélaginu eða fá ekki önnur dagvistunarúrræði frá næstu mánaðamótum, eða 110.000 krónur á mánuði. Nýjar reglur um heimgreiðslur taka gildi 1. apríl næstkomandi en þær eru ætlaðar foreldrum barna á aldrinum 12–30 mánaða sem eru búsett í Árborg og ekki komin með neitt pláss á leikskóla eða í öðru dagvistunarúrræði. „Þannig að þetta getur brúað ákveðið bil ef þú kemst ekki til dagforeldra eða í annað úrræði. Tillagan er um 110.000 þúsund á mánuði. Bæjarráð samþykkti tillöguna en nú fer málið til umsagnar hjá fagnefndunum og fer svo til lokaafgreiðslu í bæjarstjórn 25. mars næstkomandi,” segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg. En eiga ekki mikið af foreldrum eftir að nýta þessar greiðslur, eða hvað? „Við búumst alveg við því. Það er náttúrulega búið að fjölga hratt hjá okkur á undanförnum árum. Við höfum staðið okkur ágætlega í leikskólamálunum, að getað boðið 18 mánaða börnum leikskólapláss, en við viljum reyna að komast neðar en þarna gefum við aukið val í millibilinu því við höfum verið með öflugt dagforeldrakerfi en það hefur kannski vantað valið fyrir foreldrana. Nú erum við að bæta þeim möguleika að foreldrar geti þá verið lengur heima með barni sínu og fengið smá greiðslur á móti,” segir Bragi. Fulltrúi minnihlutans í velferðarnefnd Árborgar, Arna Ír Gunnarsdóttir, gerði verulegar athugasemdir við heimgreiðslurnar á síðasta fundi og sagði að málið sýni svo ekki verði um villst að það styttist í kosningar. Þá hefur hún áhyggjur af því að áætlun um kostnað vegna heimgreiðslna sé allt of lág. Fleiri muni sækja um greiðslur heldur en áætlanir gera ráð fyrir. Samkvæmt því muni heimgreiðslurnar kosta sveitarfélagið um fimm milljónir króna á þessu ári. Bæjarstjóra hefur verið falið að undirbúa viðauka vegna aukins fjármagns í fjárhagsáætlun ársins.