Liverpool nýtti ekki tækifærið á að komast upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Brighton. Danny Welbeck kom Brighton yfir á 13. mínútu en Milos Kerkez jafnaði í 1-1 fyrir Liverpool á 30. mínútu. Welbeck skoraði sigurmark Brighton snemma í seinni hálfleik og hefur hann nú skorað 12 mörk í deildinni í vetur. Danny Welbeck fagnar marki gegn Liverpool í dag.AP / Ian Walton Liverpool er í 5. sæti með 49 stig, tveimur stigum á eftir Aston Villa sem á leik til góða í fjórða sætinu. Brighton er í áttunda sæti með 43 stig. Fjögur efstu sætin tryggja þátttökurétt í meistaradeildar Evrópu og líkur eru á að fimmta sætið geri það líka.