Endurkoma Stjörnunnar bjargaði liðinu frá falli

Stjarnan og Selfoss léku síðustu leiki sína í Olísdeild kvenna á tímabilinu í dag en liðin háðu harða fallbaráttu. Þau voru jöfn að stigum fyrir leiki dagsins en Selfoss með betri innbyrðisstöðu svo Stjarnan þurfti að fá fleiri stig í dag. Stjarnan sótti Hauka heim, sem eru í þriðja sæti deildarinnar, og útlitið fyrir Garðbæinga var dökkt í hálfleik því þær voru sex mörkum undir, 17-11. Hægt og bítandi minnkuðu Stjörnukonur forskotið í seinni hálfleik og þegar rétt rúmar tíu mínútur lifðu leiks jafnaði Hanna Guðrún Hauksdóttir leikinn í 22-22. Stjarnan komst aftur tveimur mörkum yfir en Haukar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og tryggðu sér jafntefli, 26-26. Þær þurftu því að treysta á tap Selfoss og það rættist því Selfoss steinlá fyrir ÍR, 33-20. Selfoss endar því í neðsta sæti deildarinnar með 6 stig og fellur niður í Grill 66-deildina. Stjarnan er með 7 stig og fer í umspil ásamt liðunum í 2.-4. sæti í næstefstu deild um eitt laust sæti í Olísdeildinni næsta tímabil. Fram og KA/Þór mætast í lokaumferðinni á morgun en viðureign Vals og ÍBV sem átti að vera í dag var frestað vegna ófærðar.