Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt af sér sem þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook-reikningi sínum í kvöld. Í færslunni segir Hildur að fyrir hafi legið frá landsfundi flokksins að formannsskiptum myndu mögulega fylgja breytingar. Til standi að leggja tillögu formanns flokksins, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, um nýjan þingflokksformann fyrir þingflokkinn. „Ég er afskaplega þakklát fyrir stuðninginn sem ég hef frá þingmönnum um að halda samt áfram í því hlutverki en er þeirrar skoðunar að engum sé greiði gerður með því að etja þingflokknum út í átök á borð við slíka atkvæðagreiðslu. Ég hef því ákveðið að hætta sem formaður þingflokksins áður en til hennar kemur,“ segir Hildur í færslunni. Hún kveðst þó hvergi nærri hætt þingstörfum fyrir flokkinn. „Það hefur verið mér mikill heiður að vera í hlutverki þingflokksformanns undanfarin tvö ár. Verkefnin voru oft krefjandi og sérstaklega á nýliðnum átakavetri en ég geng stolt frá mínum verkum og veit að þau vann ég öll af heilindum. Ég er aldeilis ekki hætt í þingstörfunum og hlakka til að vinna áfram landinu og flokknum mínum til heilla.“