Leita 12 ára drengs í Ölfusborgum og nágrenni

Lögregla og björgunarsveitir eru við leit að 12 ára dreng í Ölfusborgum og nágrenni. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi. Drengurinn sást síðast um klukkan 16 í Ölfusborgum, orlofshúsabyggð skammt austur af Hveragerði. Drengurinn er erlendur ferðamaður og því ekki kunnugur staðháttum. Drengurinn er með dökkt, sítt hár sem bundið var í hnút. Hann klæddist svartri hettupeysu, svörtum buxum og skóm með camo mynstri. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um drenginn eða telja sig hafa séð til hans eru beðnir að láta lögreglu vita í síma 112. Ölfusborgir eru skammt frá Hveragerði.RÚV / Ragnar Visage