Á annað hundrað manns leita 12 ára drengs í Ölfusborgum

Lögregla og björgunarsveitir eru við leit að 12 ára dreng í og við Ölfusborgir, orlofshúsabyggð skammt austur af Hveragerði. Drengurinn sást síðast þar um klukkan 16. Drengurinn er erlendur ferðamaður og því ekki kunnugur staðháttum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að um 150 björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitum á Suðurlandi, frá Hveragerði að Þjórsá og björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu, taki þátt í leitinni. Björgunarsveitir af Suðurnesjum voru einnig boðaðar út til aðstoðar við leitina nú laust eftir 22. Drengurinn er með dökkt, sítt hár sem bundið var í hnút. Hann klæddist svartri hettupeysu, svörtum buxum og skóm með camo mynstri. Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um drenginn eða telja sig hafa séð til hans eru beðnir að láta lögreglu vita í síma 112.