Að minnsta kosti 800 létu lífið í jarðskjálfta af stærðinni 6,0 sem varð stuttu fyrir miðnætti í Afganistan í nótt. Þá eru rúmlega 1.500 manns slösuð. Skjálftinn varð um 27 kílómetra austnorðaustan við borgina Jalalabad í Nangarhar-héraði á 10 km dýpi, að sögn bandarísku jarðfræðistofnunarinnar. Abdul Mateen Qani, talsmaður afganska innanríkisráðuneytisins, greindi fréttastofu AFP frá því að 2.500 manns hefðu slasast í Kunar-héraði og að fjöldi húsa hefði gereyðilagst. 610 manns fórust í Kunar-héraði og 12 í Nangarhar-héraði. „Í samræmi við þetta hafa öll öryggis-, þjónustu-, heilbrigðis-, samgöngu- og matvælateymi flýtt aðgerðum sínum til að tryggja borgurunum sem verða fyrir áhrifum yfirgripsmikla og fullnægjandi aðstoð,“ sagði Abdul Mateen. Fréttastofa BBC hafði eftir heimildarmönnum innan ríkisstjórnar Talíbana að mörg þorp væru rústir einar eftir skjálftann. Rauði hálfmáninn í Afganistan segir læknateymi sín veita neyðaraðstoð í landshlutunum þar sem skjálftinn varð. Fréttin var uppfærð 8:27 eftir staðfest var að fleiri hefðu farist í skjálftanum en fyrst var greint frá.