Þrjú flugfélög hafa sótt um að fá úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu til að gera upp losun gróðurhúsalofttegunda vegna flugs síns til og frá Íslandi. Flugfélögin eru Icelandair og Play, sem varð gjaldþrota í síðasta mánuði, og ítalska leiguflugfélagið Neos. Vísir greinir frá. Greiða þarf fyrir sérstakar kolefniseiningar samkvæmt samevrópsku kerfi. Play átti að borga rúman milljarð króna daginn eftir að það hætti starfsemi. Íslenska ríkið fékk losunarheimildir, samkvæmt samkomulagi við ESB 2023, sem það getur úthlutað flugfélögum án greiðslu. Flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli.RÚV / Ragnar Visage