Lögreglan mætti þegar öryrkjar komu upp fátæktargildru við Alþingishúsið

Fátæktargildra var sett upp fyrir framan Alþingishúsið í morgun, þingi og öðrum að óvörum. Gildran var stór kassi sem ÖBÍ réttindasamtök komu fyrir. Þetta gerðu þau til að vekja athygli á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt. Alþingi vissi ekkert af fyrirhugaðri uppsetningu verksins fyrr en það var settur niður við fyrir framan þinghúsið. Starfsmenn þess fengu þó fljótt skýringar á tilurð fátæktargildrunnar og upplýsingar um að hún yrði fjarlægð síðar í dag. Því taldi Alþingi ekki ástæðu til að aðhafast. ÖBÍ réttindasamtök höfðu ekki fengið leyfi Reykjavíkurborgar til að koma fátæktargildrunni fyrir við þinghúsið. Því kallaði borgin lögregluna til sem ræddi við forsvarsmenn ÖBÍ. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, sagði fréttamanni RÚV við Alþingishúsið að markmiðið væri að vekja athygli á aðstæðum þeirra sem búa við fátækt. „Þetta er fátækragildra þar sem margir samfélagsþegnar okkar lenda í þar sem þau þurfa meðal annars að mæta óvæntum útgjöldum sem þau geta ekki staðið straum af og þurfa þá að leita á náðir yfirdráttar eða annarra smálána. Þá hefst vítahringurinn.“ „Við erum með þessum táknræna gjörningi að benda á að þetta er raunveruleg staða. Þetta er ekki bara tölfræði.“