Má Trump færa Ólympíuleikana frá Los Angeles?

Trump hefur undanfarið hótað að færa leiki á heimsmeistaramóti karla í fótbolta næsta sumar milli borga í Bandaríkjunum telji hann þörf á því af öryggisástæðum. Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, segir að Trump geti gert það ef góð rök eru fyrir því . Trump hefur einnig hótað að færa Sumarólympíuleikana 2028 frá Los Angeles til annarrar bandarískrar borgar telji hann sýnt að öryggismál í Los Angeles verði ekki eins og hann telur best. Hefur Trump vald til að færa eitt stykki Ólympíuleika eins og honum sýnist? Í stuttu máli hefur Bandaríkjaforseti ekkert vald til þess, sé rýnt í gögn Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC. Í samningi við gestgjafaborgina (Host city contract – Principles (2028)), sem undirritaður var 2017 af IOC, Los Angeles-borg og bandarísku ólympíunefndinni, USOPC, kemur fram að Alþjóðaólympíunefndin sé æðsta vald og eigandi Ólympíuleikanna . „ The IOC is the supreme authority of and leads the Olympic Movement, and the Olympic Games are the exclusive property of the IOC ,“ segir í samningnum (Host City Contract Principles bls. 8 liður B). Bandarísk stjórnvöld ekki beinn aðili að samningnum Forseti Bandaríkjanna eða önnur bandarísk stjórnvöld eru ekki aðilar að samningnum (Host City Contract Principles bls. 8). Þau koma aðeins að honum sem svokölluð stjórnvöld gestgjafaþjóðar („Host Country Authorities“), sem bera ábyrgð á öryggi, vegabréfsáritunum og öðrum stjórnvaldsverkefnum en hafa ekkert formlegt vald til að breyta leikunum eða færa þá. Aðeins Alþjóðaólympíunefndin getur ákveðið að afturkalla leikan eða flytja þá, til dæmis ef borgin eða skipuleggjendur standa ekki við skuldbindingar sínar eða ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp (Host City Contract Principles bls. 32-33). Samningurinn heyrir undir svissnesk lög og hugsanleg ágreiningsmál eru leyst fyrir Alþjóðaíþróttadómstólnum, CAS, í Lausanne í Sviss. Forsetinn á engu að síður að tryggja öryggi á Ólympíuleikum Forsetinn hefur vald til að tryggja öryggi og löggæslu á Ólympíuleikunum að eigin landslögum (Host City Contract Principles bls. 17) en hann hefur ekki vald til að færa Ólympíuleikana á milli borga að eigin geðþótta. Ákvörðunarvaldið er í höndum IOC eins og sýndi sig með Sumarólympíuleikana sem átti að halda í Tókýó í Japan árið 2020 þegar leikunum var frestað til 2021 vegna heimsfaraldurs COVID-19. Þeir voru haldnir það sumar í andstöðu við meirihluta íbúa í Tókýó. Tókýóborg hafði, með stuðningi japanskra stjórnvalda, skuldbundið sig til að halda Ólympíuleikana og átti enga möguleika á að hætta einhliða við það. Úr því hefði líkast til orðið stærsta tryggingamál sögunnar. Ítarefni sem þessi grein byggir á: Host City Contract Principles Host City Contract Operational Requirements