Segir „skemmd epli“ ekki tala í nafni flokksins

Ágústa Ágústsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, fer hörðum orðum um framgöngu landsfundarfulltrúans Elds Smára Kristinssonar og segir sérstakt að hann skuli ráðast gegn tilveru trans fólks með því „ótrúlega hatri“ sem hann er þekktur fyrir. Hún skorar á undirfélög flokksins að láta sig málið varða og segir hann ekki tala í nafni flokksins. „Það er sama hvort það er þessi flokkur eða aðrir. Það eru alltaf innan um skemmd epli, sérstaklega þegar umræðan verður öfgakennd í báðar áttir. Þá virkar það sem bensín á eld,“ segir Ágústa í samtali við fréttastofu en hún tjáði sig málið á Facebook í morgun. Tilefnið eru ummæli sem Eldur lét falla að loknu landsþingi flokksins um síðustu helgi. Þar kallaði hann Önnu Margréti Grétarsdóttur, félaga í flokknum, „kyngervil“ en Anna Margrét er trans. Sagði hann að íslensk stjórnmálasaga hefði verið skrifuð á þinginu og setti í samhengi við andúð í garð Önnu Margrétar. Anna Margrét sagði sjálf í viðtali við Vísi á dögunum að hún hefði mætt fordómum tveggja kvenna á þinginu; önnur þeirra hefði sagt henni að trans konur væru skömm við kvenþjóðina. Ágústa segir að þessar tvær konur hafi orðið sjálfri sér til skammar með framkomu sinni og skorti á manngæsku. Hún segist telja að flestir félagar í flokknum séu ekki mikið að velta sér upp úr kynhneigð eða kynvitund félaga. „Miðflokkurinn talar mikið um innihald en ekki umbúðir og það er nákvæmlega það sem kjarninn hjá okkur er.“ Fréttin var uppfærð með viðtali við Ágústu.