Hafnarstjórn Bolungarvíkur hefur unnið nýja framtíðarsýn fyrir Bolungarvíkurhöfn í samvinnu við Hafnarsvið Vegagerðarinnar. Kynntar verða áætlanir um framkvæmdir á næstu árum, forsendur þeirra og áhrif á möguleika hafnarinnar til að efla þjónustu við viðskiptavini hafnarinnar. Fundurinn verður í fundarsal bæjarstjórnar í Ráðhúsi Bolungarvík á efri hæð, miðvikudaginn 22. október kl.17.