Vörugjald af nýjum rafmagnsbílum fellt niður

Vörugjald á nýja rafmagnsbíla, og bíla sem ganga fyrir hreinni íslenskri orku eins og metani eða vetni, verður fellt niður samkvæmt tillögu fjármála- og efnahagsráðherra. Á móti er lagt til að vörugjald hækki á nýja bíla sem ganga að hluta, eða öllu leyti, fyrir jarðefnaeldsneyti. Í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu segir að með þessu sé gert ráð fyrir að tekjur af vörugjaldi á ökutæki aukist um sjö og hálfan milljarð á næsta ári. Auk fyrrnefndra breytinga verður regluverk einfaldað og undanþágum fækkað. Yfirlýst markmið breytinganna er að skapa varanlegan hvata til að velja farartæki sem nota hreina innlenda orkugjafa fram yfir ökutæki sem ganga fyrir innfluttri orku. Hlutdeild rafmagnsbíla 60 prósent af nýskráðum ökutækjum Samkvæmt fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur helmingur nýskráðra bíla á heimilum landsmanna á undanförnum árum verið rafmagnsbílar. Á þessu ári er hlutfallið komið yfir 60 prósent. Því er gert ráð fyrir að áhrif á almenning, og verðbólgu, verði takmörkuð.