Óljóst hvers vegna rúta með 45 farþega hafnaði utan vegar

Björgunarsveitin Ósk í Búðardal fékk útkall um hálf fimm í dag þegar rúta lenti út af veginum á Skarðsströnd skammt frá bænum Klifmýri. 45 farþegar voru um borð en enginn slasaðist. Ekki er ljóst hvað olli því að rútan fór út fyrir veg. Björgunarsveitin mætti til vettvangs á eigin tækjum auk þess að útvega stærri fólksflutningabíl til að ferja farþega rútunnar. Fólk var flutt af vettvangi í félagsheimilið Tjarnarlund í Saurbæ þar sem björgunarsveitin bauð upp á léttar veitingar, brauð og álegg og drykki, meðan beðið var eftir annarri rútu frá ferðaþjónustuaðilunum til að halda för hópsins áfram. Um hálf átta í kvöld voru allir farnir frá Tjarnarlundi.