Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, hefur óskað eftir fundi með stjórnendum Apple til að ræða stöðu íslensku í stafrænum heimi. Auk þess er unnið að fleiri leiðum til að koma íslensku að hjá fleiri tæknirisum. Logi greinir frá þessu í aðsendri grein á Vísi í dag. Þar fjallar hann um stöðu íslensku í tilefni af viku íslenskunnar. „Staða íslenskrar tungu er að mörgu leyti mjög sterk þótt hún sé ekki töluð af ýkja mörgum.“ Logi segir að einn af mikilvægustu þáttunum í þróun tungumálsins sé máltækni, samvinna tungumáls og tækni í hagnýtum tilgangi „svo sem hvernig tæknin getur skilið, talað, lesið, þýtt og skrifað tungumál“. Unnið er eftir máltækniáætlun um uppbyggingu máltæknilausna, gervigreindar og stafrænna innviða, segir Logi. Hann vísar til þess að Almannarómur hefji í vikunni heimildasöfnun um íslenskunotkun fyrirtækja í landinu til að bæta við Risamálheildina raunsannri mynd af notkun íslensku í atvinnulífinu. „Stór hluti af þessu starfi snýr að því að íslenska sé aðgengileg í nýjustu tækni,“ segir Logi og bendir á að fjöldi tækja sem landsmenn nota dag hvern hafi ekki íslenska valmynd. Þar tiltekur hann sérstaklega tæknirisann Apple. „Með því að tryggja að nýjasta tækni sé aðgengileg á íslensku, hvort sem um ræðir Apple, Google eða aðra tæknirisa, tryggjum við að tungumálið okkar þroskist og þróist. Ég hef óskað eftir fundi með stjórnendum Apple til að ræða stöðu íslenskunnar í hinum stafræna heimi auk þess sem verið að vinna að fleiri leiðum til þess að koma tungumálinu okkar að hjá fleiri tæknirisum.“