Kæra gegn McGregor fyrir kynferðisofbeldi dregin til baka

Bandarísk kona sem sakaði írska bardagakappann Conor McGregor um að brjóta á sér kynferðislega hefur látið dómsmál sitt gegn honum niður falla. Konan hafði sakað McGregor um að brjóta á sér inni á baðherbergi í Kaseya-höllinni í Miami á körfuboltaleik NBA-deildarinnar árið 2023. McGregor hefur frá upphafi neitað sök. Lögmenn konunnar tilkynntu dómstól í Flórída á þriðjudaginn um að kæran gegn McGregor yrði dregin til baka. Saksóknarar höfðu þegar kynngert að þeir ætluðu ekki að sækja McGregor til saka vegna málsins. McGregor var sakfelldur fyrir kynferðisofbeldi í öðru máli á Írlandi í fyrra og dæmdur til að greiða konu sem sakaði hann um nauðgun andvirði rúmlega 32 milljóna króna í bætur.