Ber að ofan, blönduð boðganga og bandarískt skautagull

Ein mesta eftirvænting margra á Vetrarólympíuleikunum í ár var fyrir bruni kvenna enda var Lindsey Vonn á keppendalista, 41 árs gömul og hún sleit krossbönd fyrir rétt rúmri viku. Hún var þó nýfarin af stað þegar hún féll til jarðar og flytja þurfti hana með þyrlu í burtu. Hún er nú þegar búin að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna. Nánar má lesa um atvikið hér: Landa hennar Breezy Johnson varð Ólympíumeistari en þó naumlega því Emma Aicher frá Þýskalandi var aðeins fjórum hundraðshlutum hægari í öðru sætinu. Sofia Goggia frá Ítalíu varð svo þriðja. Norðmenn skutu sig af verðlaunapalli Fyrsta skíðaskotfimigrein leikanna var 4x6 kílómetra boðganga. Norðmenn eru auðvitað alltaf líklegir til afreka og leiddu eftir fyrsta sprett Martin Uldal. Skotseríurnar gengu hins vegar ekki sem skyldu hjá liðsfélögum hans og sterk sveit Frakka nýtti sér það. Reynsluboltinn Julia Simon var á síðasta spretti fyrir þau og þegar komið var að síðustu skotseríunni var hún öryggið uppmálað. Hún klikkaði ekki á skoti og skilaði gullinu heim fyrir Frakka. Hin ítalska Lisa Vittozzi, hin þýska Franziska Preuss og hin norska Maren Kirkeeide komu nánast samtímis á síðasta skotsvæðið. Vittozzi urðu á engin mistök á meðan Preuss og Kirkeeide klikkuðu illa. Sú þýska þurfti að fara einn refsihring en sú norska tvo og þar munaði að lokum. Ítalía fékk silfur, Þýskaland brons og Noregur þurfti að láta sér fjórða sætið duga. Fengu gullið annars staðar Hinn norski Sander Eitrem kom hins vegar, sá og sigraði í 5000 metra skautahlaupi karla. Eitrem setti ólympíumet þegar hann kom í mark á 6 mínútum og 3,95 sekúndum, talsvert á undan Metodej Jilek frá Tékklandi og Riccardo Lorello frá Ítalíu sem fengu silfur og brons. Norðmenn fengu líka gullið í 20km skiptigöngu karla þar sem Dagur Benediktsson var á meðal keppenda. Johannes Høsflot Klæbo vann gönguna örugglega. Sá elsti ber að ofan Í samhliða snjóbrettastórsvigi karla var það hinn fertugi Benjamin Karl frá Austurríki sem hafði betur gegn Kim Sankyum frá Suður-Kóreu í úrslitasviginu. Hann vann sömu grein fyrir fjórum árum en var þó glaður því hann reif sig úr öllum fötum ofan mitti. Bronsviðureignin var gríðarspennandi og þar þurftu dómarar að rýna í myndir til að skera úr um sigurvegarann. Svo fór að Tervel Zamfirov frá Búlgaríu var hársbreidd á undan Slóvenanum Tim Mastnak. Hjá konunum vann Zuzana Maderova frá Tékklandi nokkuð sannfærandi sigur á Sabine Payer í úrslitum og heimakonan Lucia Dalmasso vann löndu sína Elisu Caffont í bronssviginu. Skautadans Þriggja daga langri liðakeppni á listskautum kláraðist svo í kvöld þegar keppt var í frjálsum æfingum í ísdansi, parakeppni, kvenna og karla. Fimm þjóðir komust í úrslit og fyrir karlakeppnina voru Japan og Bandaríkin hnífjöfn í efsta sæti með 59 stig og því ljóst að sá skautari sem gerði betri æfingar myndi færa þjóð sinni gullverðlaunin. Ilia Malinin frá Bandaríkjunum var fyrri á svellið og gerði frábærar æfingar sem hann fékk 200,3 stig fyrir. Pressan var því á Japananum Shun Sato sem var sömuleiðis glæsilegur en rétt undir Malinn, 194,86, og gullið fór til Bandaríkjanna, silfrið til Japan. Ítalir fengu svo bronsið, enn ein verðlaunin hjá heimamönnum á þessum leikum. Þeir hafa unnið til 9 verðlauna, þremur meira en Noregur sem er í öðru sæti á listanum. Gullin er þó fleiri hjá Norðmönnum, þrjú gegn einu.