Ættjarðarvinir máttu lúta í lægra haldi fyrir Sæhaukunum

Sjóhaukarnir frá Seattle sýndu afburðavarnarleik og sigruðu Ættjarðarvinina frá Nýja-Englandi 29 - 13 í Ofurskálarleik NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta. Leikurinn var haldinn á Levi's-leikvanginum í Santa Clara í Kaliforníu og er vinsælasti íþróttaviðburður í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Íslendingar hafa fylgst spenntir með og nokkrir veitingastaðir fengu heimild til lengri opnunartíma svo fólk gæti úðað í sig kjúklingavængjum og hvatt sitt lið til dáða. Innherjinn AJ Barner skoraði snertimark fyrir Seattle eftir sendingu frá leikstjórnandanum Sam Darnol, sem skilar sex stigum. Auk þess sló Jason Myers Ofurskálamet með því að skora fimm mörk. Með sigrinum tryggði liðið sér hinn eftirsótta Vince Lombardi-bikar öðru sinni, og í fyrsta skipti í tólf ár. Hinn 23 ára Drake Maye hafði dreymt um að verða yngsti leikstjórnandi sögunnar til að hampa bikarnum enda leiddi hann New England Patriots af öryggi gegnum tímabilið. Draumurinn breyttist í martröð því Maye tapaði boltanum sex sinnum og tókst aldrei að knýja sóknina áfram svo nokkru næmi. Liðið þurfti líka oft að sparka boltanum frá sér sem gaf Seahawks sífellt tækifæri til að auka á forystuna. Staðan var 9 - 0 í hálfleik. Undir lok leiks tókst Rhamondre Stevenson að bæta stöðuna með snertimarki eftir sendingu frá Maye. En úrslitin voru ráðin, Seattle Seahawks sigruðu 29 - 13, eins og áður sagði. Áhorfendur virtust skemmta sér hið besta og ekki síður í hálfleik þegar Grammy-verðlaunahafinn Benito Ocasio eða Bad Bunny frá Púertó Ríkó tróð upp. Hið sama er ekki hægt að segja um Donald Trump forseta sem sagði framkomu tónlistarmannsins hreina lítilsvirðingu við þjóðina. „Þetta var gersamlega hræðilegt,“ skrifaði Donald Trump á Truth Social. Bad Bunny söng og talaði á spænsku og hyllti Púertó Ríkó sem er sérstakt sambandssvæði innan Bandaríkjanna. „Enginn skilur orð af því sem maðurinn er að segja,“ skrifaði Trump, þótt opinberar tölur sýni að 41 milljón Bandaríkjamanna tali spænsku. Fyrir viku hlaut Bad Bunny Grammy-verðlaunin fyrir plötu ársins, Debi Tirar Mas Fotos. Það var í fyrsta sinn sem plata sungin á spænsku fær verðlaun í þessum flokki. Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi NFL fyrir að velja Bad Bunny og sagði hann aðeins munu dreifa hatri en fullyrti jafnframt að hann vissi ekkert hver hann væri. Tónlistarmaðurinn hefur lengi gagnrýnt stefnu Trumps, meðal annars í innflytjendamálum. Hann hefur einnig verið einarður talsmaður hinsegin fólks og heimalandsins Púertó Ríkó. Sigurvegarar síðustu tíu ára 2026: Seattle Seahawks 29 - New England Patriots 13 2025: Philadelphia Eagles 40 - Kansas City Chiefs 22 2024: Kansas City Chiefs 25 – San Francisco 49ers 22 í framlengingu 2023: Kansas City Chiefs 38 – Philadelphia Eagles 35 2022: Los Angeles Rams 23 – Cincinnati Bengals 20 2021: Tampa Bay Buccaneers 31 - Kansas City Chiefs 9 2020: Kansas City Chiefs 31 - San Francisco 49ers 20 2019: New England Patriots 13 - Los Angeles Rams 3 2018: Philadelphia Eagles 41 - New England Patriots 33 2017: New England Patriots 34 – Atlanta Falcons 28 í framlengingu Eftirtalin lið hafa sigrað oftast: 6 sinnum: Pittsburgh Steelers og New England Patriots 5 sinnum: San Francisco 49ers og Dallas Cowboys 4 sinnum Kansas City Chiefs, Green Bay Packers og New York Giants