Frá læknamistökum til kerfisbaráttu - tryggingar­fé­lag vill að ríkið borgi fyrst

Það er grimmur veruleiki að verða fyrir heilsutjóni vegna læknamistaka. En þegar sá aðili sem á að bæta tjónið – tryggingafélag læknisins, neitar að axla ábyrgð og sendir tjónþolann í hringi í kerfinu eykur það byrði tjónþolans enn frekar.