Braut blað í sögunni eftir spóluna sem mamma keypti

Hinn 46 ára gamli Breti, Aden Durde, varð í nótt fyrsti þjálfarinn frá landi utan Ameríku til þess að fagna sigri í Super Bowl. Hann stýrir vörninni sem lagði grunninn að afar öruggum sigri Seattle Seahawks gegn New England Patriots.