Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar
Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar.