Íslenska knattspyrnukonan Sigdís Eva Bárðardóttir átti mjög erfitt fyrsta sumar í atvinnumennsku sem einkenndist af leiðinlegum meiðslum. Nú er Víkingsstelpan farin að minna á sig í framlínu IFK Norrköping og greinilega klár í nýtt tímabil.