Það er jákvætt að ríkið setji meira fjármagn í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og ætli sér að koma meira að rekstrinum með tilkomu nýs félags um almenningssamgöngur. Það sem hins vegar vekur áhyggjur er áherslan á aukna útvistun, sem vagnstjórar hafa ítrekað gagnrýnt í gegnum tíðina.