Ísland kallar óvænt inn fimmta keppandann á ÓL

Ísland fékk auka sæti í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir í Mílanó-Cortina. Sonja Lí Kristinsdóttir hefur bæst í hóp Íslendinga og verða því alls fimm íslenskir keppendur. Sonja er ríkjandi Íslandsmeistari í svigi, fædd árið 2006 og keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar. Hún mun keppa í stórsvigi sunnudaginn 15. febrúar og svigi miðvikudaginn 18. febrúar, líkt og Elín Elmarsdóttir Van Pelt. Sonja fetar í fótspor föður síns Kristins Magnússonar sem keppti á Ólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City í stórsvigi og svigi. Stjórn ÍSÍ ákvað að veita Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur ekki þetta aukasæti en hún er enn í raun efst samkvæmt röðun inn á leikana. Áður hafði Elín fengið sæti Hólmfríðar vegna meiðsla þeirra síðarnefndu. Hólmfríður gagnrýndi sambandið þar sem hún taldi sig vera keppnisfæra. Hólmfríður hefur verið á leikunum til að styðja við Dag Benediktsson. Hún hefur verið í bænum Predazzo þar sem skíðagangan fer fram. Hvers vegna fær Ísland sætið? Ísland fær auka sætið vegna stöðu á alþjóðlegum stigalista Ólympíuleikanna. Stigasöfnunin átti sér stað í aðdraganda leika með frammistöðu á alþjóðlegum mótum. Hólmfríður Dóra var þar fremst í flokki en stig Elínar, Sonju og fleiri telja einnig. Frestur til að taka ákvörðun um sætið var klukkan 21:00 í gærkvöldi.