Nú þegar Sonja Lí Kristinsdóttir hefur fengið úthlutað sæti í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu er ljóst að hún og faðir hennar bætast í fámennan hóp Íslendinga. Kristinn keppti nefnilega á Vetrarólympíuleikunum árið 2002 í Salt Lake City. Aðeins fáein dæmi eru um það í íslenskri ólympíusögu að börn feti í fótspor foreldra sinna og keppi á Ólympíuleikum. Eftir því sem næst verður komist voru feðgarnir Vilhjálmur Einarsson (þrístökk á ÓL 1956 og 1960) og spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson (ÓL 1984, 1988 og 1992) fyrstir Íslendinga til að afreka þetta. Tvö börn Hrafnhildar kepptu líka í sundi Á Sumarólympíuleikunum í Seoul árið 1988 tókst sund-systkinunum Bryndísi og Magnúsi Má Ólafsbörnum svo að feta í fótspor móður sinnar Hrafnhildar Guðmundsdóttur. Hrafnhildur keppti í sundi á Ólympíuleikunum 1964 og 1968. Á Vetrarólympíuleikunum í Albertville árið 1992 náði Örnólfur Valdimarsson svo að leika eftir afrek föður síns, Valdimars Örnólfssonar sem keppti í alpagreinum á leikunum í Cortina árið 1956. Tvennir handboltafeðgar Þá voru tveir úr handboltalandsliði Íslands á Sumarólympíuleikunum í Beijing árið 2008 sem bættust í þennan hóp. Arnór Atlason og Logi Geirsson. Geir Hallsteinsson faðir Loga hafði keppt í handbolta fyrir Ísland á Ólympíuleikunum í München árið 1972 og Atli Hilmarsson faðir Arnórs með handboltalandsliðinu í Los Angeles 1984 og í Seoul 1988. Arnór keppti einmitt líka á tvennum leikum eins og Atli því Arnór var einnig með Íslandi á leikunum í London árið 2012. Nú munu svo feðginin Kristinn Magnússon (ÓL 2002 í Salt Lake City) og Sonja Lí Kristinsdóttir bætast við þennan hóp.