U-beygja í öldrunar­þjónustu er ekki lausn

Mikil og réttmæt umræða hefur skapast undanfarið um alvarlega stöðu á Landspítalanum. Þar liggja aldraðir einstaklingar inni, ekki vegna þess að þeir þurfi áfram bráðaþjónustu, heldur vegna þess að þeir geta ekki farið heim til sín og bíða því eftir lausu hjúkrunarrými.