Ísafjörður : 661 tonn landað í janúar

Aðeins tvö skip lönduðu afla í Ísafjarðarhöfn í síðasta mánuði. Togarinn Páll Pálsson ÍS landaði 8 sinnum í janúar samtals 552 tonnum af bolfiski. Frystitogarinn Júlís Geirmundsson ÍS landaði einu sinni, 109 tonnum af afurðum.