Jafn­rétti er ekki „aukaverkefni“

Sumum finnst að jafnrétti sé „alveg að koma“ hér á Íslandi, og kannski ekki furða. Við höfum jafnréttislög, jafnréttisáætlanir, og jafnréttisnefndir. Samt heyrum við – aftur og aftur – sögur af fólki sem upplifir útilokun, vantrú á kerfinu, óöryggi eða einfaldlega að rödd þeirra fái ekki sama vægi og raddir annarra.