Enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar

Einn er enn í haldi lögreglu vegna hnífsstunguárásar í miðborg Reykjavíkur á laugardagskvöld. Þrír voru handteknir vegna málsins í gær. Tveimur hefur verið sleppt, segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu. Árásin varð fyrir utan skemmtistað í miðborginni um klukkan hálf tólf fyrir miðnætti. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en árásarmaðurinn flúði af vettvangi. Áður komið til kasta lögreglu Að sögn Elínar Agnesar virðist ekki vera tenging á milli þeirra tveggja. Sá sem varð fyrir árásinni er á þrítugsaldri og var útskrifaður af spítala í gærmorgun. Áverkar hans reyndust ekki lífshættulegir. Rannsókn er í fullum gangi og lögreglan telur sig hafa einhverja mynd af tilefni árásarinnar. Árásarmaðurinn verður yfirheyrður í dag, en ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Elín Agnes segir hann áður hafa komið til kasta lögreglu, og líka annar hinna tveggja.