Málið mögu­lega fyrir dóm­stóla eða Umba: „Upp­lifa að það sé verið að mis­nota traust þeirra“

Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búna að missa klefann.