Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt……er flotgufa for­gangs­mál?

Reykjavík er höfuðborgin okkar. Það er ágætt að rifja það upp öðru hverju, svona rétt áður en við ræðum um grunnatriði eins og að fólk komist óbrotið á milli staða, börn fái þjónustu, íbúar komist í og úr vinnu án tafa í umferð vegna þrengingar gatna.