Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastigi.