Mannréttindasamtök fordæma 20 ára fangelsisdóm, sem féll í Hong Kong í morgun, yfir lýðræðissinnanum Jimmy Lai, Evrópusambandið krefst þess að honum verði sleppt tafarlaust. Jimmy Lai var sakfelldur fyrir leynimakk við erlend öfl og uppreisnaráróður gegn stjórnvöldum í desember. Í morgun var hann dæmdur í Hong Kong til 20 ára fangavistar. Fyrri tveggja ára dómur dregst frá og því bíður hans átján ára fangavist. „Grimmilegur tuttugu ára dómur yfir 78 ára manni er raunverulega dauðadómur,“ segir Elaine Pearson sem stjórnar Asíudeild Mannréttindavaktarinnar. Nefnd til verndar blaðamönnum segir dóminn síðasta naglann í kistu málfrelsis í Hong Kong og Amnesty International segir hann birtingarmynd þess að þar sem áður var farið að lögum ríki nú ógnarstjórn. Lai hefur verið einn öflugasti talsmaður lýðræðisafla í Hong Kong og með hörðustu gagnrýnendum kínverskra stjórnvalda. Hann var handtekinn í ágúst 2020, þá réðust um 200 lögreglumenn inn á ritstjórnarskrifstofur dagblaðsins Apple Daily, sem fjölmiðlasamsteypa hans, Next Media, gaf út. Verjandi Lais vildi ekki svara hvort niðurstöðunni verði áfrýjað en það verður að gerast innan 28 daga. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur krafist þess að Lai verði látinn laus, það gerði Evrópusambandið einnig í yfirlýsingu í morgun. Umdeild öryggislög frá 2020 Lai var dæmdur á grundvelli umdeildra öryggislaga sem tóku gildi 2020. Samkvæmt þeim er andóf og niðurrifsstarfsemi í garð kínverskra stjórnvalda bönnuð. Hong Kong er sjálfstjórnarhérað í alþýðulýðveldinu Kína og nýtur ákveðins sjálfstæðis. Samband Hong Kong og Kína byggist á því sem kallað er eitt ríki - tvö kerfi. Í því felst að íbúar Hong Kong njóta áfram ýmissa réttinda sem þeir höfðu undir stjórn Breta. Til dæmis málfrelsi og frelsi til að mótmæla. Mótmælendur og aðrir andstæðingar öryggislaganna segja þau ganga gegn þessu kerfi.