Í dag eru sjö ár frá hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar á Írlandi. Ekkert hefur spurst til hans síðan hann gekk út af hóteli í Dyflinni og ekkert skýrst hvað varð um hann. Lögreglan á Írlandi hefur enn á ný óskað eftir því að almenningur hafi samband hafi hann einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsóknina. „Jafnvel minnstu upplýsingar, sama hversu léttvægar fólki kann að finnast þær, gætu komið að gagni við rannsóknina,“ segir lögreglan í tilkynningu sem hún birti. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum frá fólki sem var í Whitehall, Santry eða Collins Avenue og nágrenni þegar Jón Þröstur hvarf. Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi í miðlægri rannsóknardeild lögreglu á höfuðborgarsvæðinu, segir írsku lögregluna hafa tekið málið föstum tökum og málið sé galopið. „Við erum að leita til almennings eftir eftir upplýsingum og biðja hvern þann sem kann að hafa einhverjar upplýsingar, sem gætu nýst í rannsókn málsins, að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eða írsku lögregluna. Með hvaða upplýsingar sem þau hafa og hversu smávægilegar sem þær kunna að vera. Þær gætu nýst við málið,“ segir Eiríkur. Írska lögreglan kom til Íslands í fyrra og tók viðtöl við tugi Íslendinga vegna rannsóknarinnar á hvarfi Jóns Þrastar. RÚV og RTÉ unnu sameiginlega að rannsókn málsins og gerð útvarpsþáttanna Where is Jón? sem birtust í íslenskri aðlögun sem Hvar er Jón? Sjö árum eftir að Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dyflinni, óskar lögreglan enn eftir upplýsingum sem geta komið að gagni. Írska lögreglan hefur tekið málið föstum tökum og málið er galopið, að sögn Eiríks Valbergs, rannsóknarlögreglumanns.