Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja frá störfum. Hún greindi frá þessu í Kastljósi í kvöld . Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst lýsti yfir vantrausti á rektor skólans um miðjan janúar eftir að erindi var sent til siðanefndar skólans um fræðigreinar starfsmannanna. Notast var við gervigreindarforritið Claude við mat á fræðigreinunum og hvort starfsmennirnir væru raunverulegir höfundar þeirra. Siðanefnd Háskólans á Bifröst hreinsaði fyrir helgi þrjá starfsmenn skólans af öllum ásökunum um að vera ranglega skráðir meðhöfundar að fræðigreinum. „Ég sendi bréf á stjórn skólans þar sem ég bað um lausn frá starfi,“ segir Margrét. „Ég tek þetta mjög alvarlega og hef haft nægan tíma til að hugsa minn gang.“ Fréttin verður uppfærð.