Fjöl­skyldu­faðir þungt haldinn á spítala eftir al­var­lega á­rás á þorra­blóti

Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á Þorrablóti HK sem fór fram í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Lögreglan segir um alvarlega líkamsárás að ræða. Annar karlmaður var í gæsluvarðhald í tvo sólarhringa grunaður um verknaðinn en síðar sleppt úr haldi lögreglu.