Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram

Víkingur Reykjavík hóf vegferð sína í Lengjubikar kvenna í fótbolta á öruggum 7-0 sigri í leik gegn Fram á Víkingsvelli í kvöld. Freyja Stefánsdóttir skoraði þrennu fyrir heimakonur.