Í dag voru fimm verðlaunagreinar á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó-Cortina. Skautahlaupskonan Jutta Leerdam vann til gullverðlauna fyrir Holland í 1000 metra hlaupi. Hún setti nýtt Ólympíumet á tímanum 1:12,31 og brast í grát er hún kom í mark. Skömmu áður hafði landa hennar Femke Kok bætt Ólympíumetið en það stóð einungis í nokkrar mínútur. Leerdam er samfélagsmiðlastjarna og kom á leikana í einkaþotu kærasta síns Jake Paul. Fyrir það hlaut hún mikla gagnrýni en hún svaraði fyrir sig á svellinu í dag. Keppni Leerdam og hinnar japönsku Miho Takagi má sjá hér að neðan. Takagi náði bronsi fyrir Japan. Fimm verðlaunagreinar voru á Vetrarólympíuleikunum í dag. Hollenskan skauthlaupkonan Jutta Leerdam hefur vakið mikla athygli en hún kom meðal annars á mótið á einkaþotu. Hún fékk mikla gagnrýni fyrir en svaraði henni með Ólympíumeti. Í alpatvíkeppni liða tekur einn keppandi brunið og annar svigið og samanlagður tími sker úr um sigurvegara. Heimamaðurinn Giovanni Franzoni átti bestu brunferðina og Svisslendingar röðuðu sér í næstu þrjú sæti. Þar á meðal var gullverðlaunahafinn úr bruninu í fyrradag, Franjo von Allmen. Liðsfélagi hans Tanguy Nef svigaði eins og óður maður og þeir áttu besta tímann samanlagt þegar Ítalinn Alex Vinatzer átti einn eftir að fara niður. Hann tapaði strax dýrmætum tíma og kom ekki nema sjöundi í mark svo gullið var svissneskt. Svisslendingar fengu einnig bronsið eða þeir Marco Odermatt og Loic Meillard og Austurríkismennirnir Vincent Kriechmayr og Manuel Feller unnu silfur. Sviss vann einnig gullverðlaun í skíðafimi kvenna því Mathilde Gremaud átti bestu ferðina í svokölluðu slopestyle eða brekkufimi. Þar sýna keppendur listir sínar á alls kyns hindrunum eins og stökkpöllum og handriðum. Gremaud fékk 86,96 fyrir bestu ferðina sína, 0,48 betur en Eileen Gu frá Kína sem vann silfur. Bronsið fékk Kanadakonan Megan Oldham. Samantekt úr helstu atburðum fyrstu daga Ólympíuleikanna má sjá í Ólympíukvöldi. Þáttinn má nálgast hér og í spilara RÚV.