Bílslys við Sprengisand í Reykjavík

Slökkvilið var fyrir skömmu kallað út að Sprengisandi í Reykjavík vegna bílslyss. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir slysið varða tvo bíla. Einn dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Varðstjóri segir þá nýkomna á staðinn. RÚV / Ragnar Visage