Hafnbann á olíu tekið að bíta á ferðir erlendra flugfélaga

Bandaríkin hafa sett hafnbann á olíuflutninga til Kúbu sem hefur orðið til þess að erlend flugfélög hafa dregið úr ferðum þangað. Eldsneyti fyrir flugvélar er að verða uppurið vegna hafnbannsins og það er tekið að hafa áhrif á ferðir þeirra rúmlega tugs erlendu flugfélaga sem til Kúbu fljúga. Mörg þeirra eru tekin að sækja eldsneyti annarra eyja í Karíbahafi. Bandaríkjastjórn hefur hótað hverju því landi háum tollum sem flytur olíu til Kúbu með það að markmiði að koma þarlendum stjórnvöldum að samningaborðinu varðandi stjórnarskipti. Háttsettir stjórnarliðar hafa sagt núverandi stjórnvöld ógn við öryggi Bandaríkjanna. Flugfélagið Air Canada ætlar að hætta öllum ferðum til landsins og tilkynnti í kvöld að það hygðist flytja þrjú þúsund farþega þaðan. Kanadamenn sækja mikið í strandlífið á Kúbu yfir vetrarmánuðina og koma ferðamanna er mikilvæg fjárhag ríkisins. Mörgum bensínstöðvum var lokað á mánudag og stjórnvöld hafa boðað skömmtun. Claudia Sheinbaum Mexíkóforseti segir stefnu Bandaríkjanna afar ósanngjarna og hefur sagst leita diplómatískra leiða til að útvega Kúbverjum olíu án þess að tíunda það frekar. Mexíkó sendi 800 tonn af neyðarbirgðum til Kúbu á sunnudag.