Lagt er til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól húsnæðislána verði gerð varanleg í drögum að frumvarpi sem eru í samráðsgátt stjórnvalda . Hún hefur síðastliðin ár alltaf verið framlengd eitt ár í senn. Sú breyting er gerð að einstaklingum verður framvegis leyft að nýta heimildina í tíu ár, eða að hámarki samtals 120 mánuði. Lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar til greiðslu húsnæðislána voru sett til bráðabirgða árið 2014 til að bregðast við skuldavanda heimilanna og tugir þúsunda hafa nýtt sér þá leið. Hámarksfjárhæð til ráðstöfunar séreignasparnaðar hvers einstaklings verði 500 þúsund krónur, sem hækki árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2027. Sérstakt lægra viðmið fyrir hjón eða sambúðarfólk er ekki að finna í frumvarpinu. Að öðru leyti er að stærstum hluta gert ráð fyrir að áfram verði sambærileg skilyrði um nýtingu sparnaðarins og gilt hafa undanfarin ár. Ráðgert er að heimildin gangi strax í gildi en að fólk geti sótt um nýtingu hennar afturvirkt til 1. janúar 2026. Jafnframt eru boðaðar breytingar á lögum um stuðning við kaup á fyrstu íbúð sem ætlað er að samræma skilyrði úrræðanna tveggja og auðvelda framkvæmdina. Frumvarpið er hluti fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var í lok október.