Bandarískir öldungadeildarþingmenn: Brýnt að endurreisa traustið milli landanna tveggja

Fjórir bandarískir öldungadeildarþingmenn sem funduðu með grænlensku landstjórninni um helgina eru á einu máli um að virða beri sjálfsákvörðunarrétt landsins og fullveldi danska konungdæmsins. KNR fjallaði um málið. Þingmennirnir sögðu Grænland og Bandaríkin vera samherja á mörgum sviðum og því væri nauðsynlegt að endurreisa traustið sem þvarr eftir hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku Grænlands með valdi. Angus King, óháður þingmaður fyrir Maine, sagði á sameiginlegum blaðamannafundi að meirihluti Bandaríkjaþings væri á sama máli. Demókratarnir Gary Peters og Maggie Hassan, frá Michigan og New Hampshire, samsinntu því. Repúblikanaþingmaðurinn Lisa Murkowski hefur látið málefni Grænlands sig miklu varða og kvaðst miður sín vegna hótananna og þess uggs sem hann hefði kveikt í brjósti Grænlendinga. Murkowski, sem er þingmaður Alaska, sagði mikla hagsmuni felast í samstarfi ríkja við Atlantshaf sem byggði á samtali og trausti og áréttaði mikilvægi þingsins við allar ákvarðanatökur, hvað svo sem forsetinn segði. Angus King sagðist aðspurður ekki vita hvernig störfum þriggja ríkja nefndar um varnir Grænlands miðaði. Aðeins einn eða tveir fundir væru að baki og mikið verk fram undan. Hann álítur þó að samtalið beri ríkulegan ávöxt og þótt útilokað væri að vita hvort Trump snerist hugur hlyti það versta að vera að baki. Murkowski sagði fjölda samflokksmanna hennar ekki vilja rugga báti Trumps en margir hafi trúað henni fyrir því að forsetinn hefði farið yfir strikið varðandi yfirtökuna á Grænlandi. Málefni Grænlands hafa verið í brennidepli alþjóðlegrar umræðu frá því Trump ámámálgaði yfirtöku landsins í fyrra og enn frekar eftir að hann kvaðst ekki útloka beitingu hervalds snemma árs. Frakkar og Kanadamenn opnuðu nýlega ræðismannsskrifstofur í Nuuk og hafa lýst fullum stuðningi við Grænland í deilunni við Bandaríkin.