Var með krabba­mein og lést af völdum blóð­tappa í lunga

Leikkonan ástsæla Catherine O'Hara lést af völdum blóðtappa í lunga. Þetta kemur fram á dánarvottorði sem gefið hefur verið út. Þar segir einnig að hún hafi þjáðst af krabbameini í endaþarmi, sem hún hafi fengið meðferð við frá því í mars 2025.