Þingmenn segja minnst sex manns hlíft með yfirstrikunum í Epstein-skjölunum

Tveir bandarískir þingmenn segja valdamiklum og nafntoguðum mönnum hlíft með yfirstrikunum í Epsteins-skjölunum. Þeir Thomas Massie og Ro Khanna fengu í gær að lesa skjölin óritskoðuð og segjast hafa séð nöfn minnst sex manna sem gætu verið bendlaðir við glæpsamlegt athæfi. Þingmennirnir segjast hafa þurft að grafa djúpt til að finna nöfn mannanna, enda gagnamagnið mikið, en þeir vilja ekki upplýsa hverjir þeir eru. Massie gaf í skyn að hann hefði hvergi séð nafni Donalds Trump bregða fyrir sem mögulegs samverkamanns Epsteins. Hið minnsta einn hinna sex sé bandarískur ríkisborgari, einn útlendingur og þrír eða fjórir af óskilgreindum uppruna. Massie sagði einn vera háttsettan í erlendri ríkisstjórn og Khanna sagði minnst einn hinna víðfrægan. Þeir vilja að dómsmálaráðuneytið afhjúpi nöfn sexmenninganna í skjölunum en útiloka ekki heldur að tilgreina þau sjálfir síðar fyrir þingnefnd eða í þinginu sjálfu. Þeir vilji gefa ráðuneytinu færi á að viðurkenna að strikað hafi verið yfir nöfn mannanna fyrir mistök og leiðrétta það. Þingmönnum var heimilað að lesa það sem eiga að vera óritskoðuð skjöl frá og með gærdeginum en Massie og Khanna segja yfirstrikanir enn að finna. Úr því yrði vonandi bætt. Þingmaðurinn Jamie Raskin sem líka hefur litið yfir efnið tekur undir það og minnir á að eingöngu átti að hylja nöfn fórnarlamba og upplýsingar sem gætu komið yfirstandandi sakamálarannsókn. Skjölin, sem telja milljónir, má skoða í lokuðu rými þar sem aðeins eru fjórar tölvur og þingmenn mega hvorki hafa með sér síma né njóta fulltingis starfsliðs síns. Raskin sagði víða að óþörfu strikað yfir nafn Trumps, til að mynda í tölvupóstsamskiptum lögmanna þeirra Epsteins varðandi heimsókn hans í Mar-a-Lago árið 2009. Raskin hefur reiknað út að lestur skjalanna geti tekið sjö og hálft ár sitji einhver við tölvu allan þann tíma sem ráðuneytið úthlutar dag hvern. Þingmaðurinn Jared Moskowitz segir það sem hann sá við lesturinn viðbjóðslegt. „Þarna er fullt af nöfnum, heilmargir samverkamenn Epsteins sem stunduðu mansal með stúlkur um allan heim.“ Moskowitz segir að valdafólk af öllu tagi verði að standa reikningsskil gerða sinna teljist það hafa hegðað sér ósiðlega.