ÓL dagur 5: Tveir íslenskir keppendur í sprettgöngu

Veislan á Vetrarólympíuleikunum heldur áfram í dag og alls eru tólf íþróttaútsendingar á RÚV og RÚV 2. Þar að auki verður annar þáttur Ólympíukvölds klukkan 21:15 á RÚV. Í dag keppa þau Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir í sprettgöngu. Útsending hefst 08:05 á RÚV 2. Ólympíukvöld verður á RÚV virka daga þar sem keppnir dagsins verða gerðar upp. Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson stýra þáttunum sem hefjast upp úr klukkan 21 og kafa ofan í það helsta á leikunum með gestum sínum. Skíðaskotfimi fer af stað Þá er fjölbreytt dagskrá í dag. Helst ber að nefna 20 km keppni í skíðaskotfimi karla klukkan 12:30 sem Gunnar Birgisson lýsir.