Það blæs nokkuð af norðaustri í dag, mest á Vestfjörðum og við suðurströndina. Íbúar á norðan- og austanverðu landinu geta gert ráð fyrir éljum eða slydduéljum en suðvestanlands verður heldur bjartara um að litast. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðaustan tíu til átján metrar á sekúndu, hvassast á Vestfjörðum og við suðausturströndina. Él fyrir norðan og austan, en léttir til á Suður- og Vesturlandi. Hiti frá frostmarki að sex stigum, mildast syðst. Kólnar smám saman og heldur hægari vindur í kvöld. Norðaustan átta til þrettán á morgun, en hægari norðaustantil. Dálítil él, en bjart að mestu sunnan heiða. Frost 1 til 6 stig yfir daginn.