Forseti Alþjóða skíða- og snjóbrettasambandsins er á því að ákvörðun um þátttöku á mótum eins og Vetrarólympíuleikunum, þegar meiðsli hafi gert vart um sig í aðdraganda móts, eigi að liggja hjá íþróttafólkinu sjálfu. Mikil umræða hefur sprottið upp eftir mál Lindsey Vonn sem einnig er hægt að tengja við mál skíðakonunnar Hólmfríðar Dóru Friðgeirsdóttur hér heima.