Nýliðinn janúar andaði heldur kaldar í andlit Evrópumanna en vanalegt er og reyndist kaldasti janúarmánuður frá því árið 2010, þegar upp var staðið, samkvæmt nýrri skýrslu Kóperníkusar, loftslagsstofnunar Evrópu. Í álfunni var að meðaltali 2,34 gráðu frost og 0,28 gráðum kaldara en í janúar í fyrra sem var sá heitasti frá upphafi mælinga. Stofnunin segir miklar veðuröfgar hafa einkennt mánuðinn; á meðan óvenjukalt var á norðurhveli jarðar geisaði hitabylgja í suðrinu. Þrátt fyrir þetta er nýliðinn janúar sá fimmti heitasti meðal bræðra sinna frá því mælingar hófust. Meðalhitastigið á jörðinni var 12,95 gráður eða 0,51 gráðu hærra en meðaltal áranna 1991 til 2000 og 1,47 gráðum hærra en á seinni hluta 19. aldar. Það er hársbreidd innan við markmið Parísarsáttmálans. Meðalhitinn á Íslandi í janúar var um eða yfir meðallagi síðustu ára í flestum landshlutum, nema á Norður- og Norðvesturlandi. Mánuðurinn var óvenjuþurr, hægviðrasamur og bjartur og snjór með minnsta móti.