Moka Fjarðarheiði sem lokaðist í gærkvöld

Starfsmenn á vegum Vegagerðarinnar vinna að því að moka snjó á Fjarðarheiði eftir að veginum var lokað í kringum miðnætti vegna ófærðar og veðurs. Ökumenn höfðu fest bíla sína á heiðinni þar sem aðstæður til aksturs voru erfiðar. Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum. Snjóþekja eða éljagangur er á Öxnadalsheiði og Almenningum og á Norðausturlandi er snjóþekja á nokkrum leiðum, svo sem á Hófaskarði, á Hólaheiði og Brekknaheiði. Nokkuð er um krapa á Fagradal, Hlíðarvegi og víðar á Austurlandi. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Öxl og Breiðdalsheiði.